Nýjast á Local Suðurnes

Delta mun auka áætlunarflug frá Keflavík til New York

Delta Air Lines hefur ákveðið að auka áætlunarflug sitt milli Íslands og New York úr fjórum mánuðum í sjö. Fyrsta ferð næsta árs verður 12. febrúar og verður flogið þrisvar í viku fram í byrjun maí, en eftir það verður flogið daglega til loka september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu.

Auglýsing: Vantar þig gistingu í New York?

„Vinsældir þessarar flugleiðar hafa vaxið jafnt og þétt og það er ánægjulegt að geta brugðist við með því að lengja ferðatímabilið um þrjá mánuði,“ segir Nat Pieper, forstjóri Delta í Evrópu.

„Rúmlega 140 þúsund farþegar hafa flogið með Delta milli Íslands og Bandaríkjanna frá því við byrjuðum árið 2011. Ferðamenn frá Bandaríkjunum eru nú fjölmennasti hópurinn sem kemur til Íslands. Með lengra ferðatímabili styðjum við þennan vöxt ferðaþjónustunnar, og bjóðum íslenskum viðskiptavinum um leið hagkvæma og öfluga tengingu við 60 áfangastaði vestan hafs,“ segir hann.