Nýjast á Local Suðurnes

Bæjarráð Suðurnesjabæjar skorar á ríkisvaldið

Bæjarráð Suðurnesjabæjar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna stöðu atvinnumála á Suðurnesjum og skorar á ríkisvaldið að styðja við sveitarfélagið.

Á fundi bæjarráðs Suðurnesjabæjar þann 26. ágúst sl. var fjallað um alvarlega stöðu atvinnumála á Suðurnesjum. Bæjarráð samþykkti samhljóða bókun um málin og hefur bókunin verið send á ríkisstjórn, alþingismenn og fleiri aðila. Eftirfarandi er bókun bæjarráðs:

Bæjarráð Suðurnesjabæjar lýsir þungum áhyggjum vegna stöðu atvinnumála í Suðurnesjabæ og á Suðurnesjum.  Samkvæmt spá Vinnumálastofnunar fyrir ágúst 2020 er gert ráð fyrir að atvinnuleysi, almennt og minnkandi starfshlutfall, telji um 17% á Suðurnesjum og tæplega 14% í Suðurnesjabæ. Útlit er fyrir að staðan versni enn frekar á komandi vikum og mánuðum.  Fjöldi einstaklinga á atvinnuleysisskrá er hvergi meiri á einu landsvæði en á Suðurnesjum.

Í ljósi þróunar á heimsfaraldri Covid-19 og þeirra sóttvarnaaðgerða sem stjórnvöld hafa gripið til, þá er ástand og horfur í atvinnumálum nú enn meira áhyggjuefni en var fyrir nokkrum vikum síðan.  Eftir að heldur birti til á sumarmánuðum, þá standa nú fjölmörg atvinnufyrirtæki frammi fyrir samdrætti í starfsemi þeirra, sem veldur tekjufalli og hefur í för með sér fækkun starfsfólks.  Framundan er erfiður tími fyrir fjölmarga einstaklinga og heimili vegna atvinnumissis og óvissu í atvinnu- og fjármálum. 

Bæjarráð Suðurnesjabæjar beinir ákalli til ríkisstjórnar og alþingismanna um að vinna með sveitarfélögum á Suðurnesjum og aðilum vinnumarkaðarins að því að leita allra mögulegra leiða til þess að mæta þeim miklu áskorunum sem samfélagið stendur frammi fyrir og leita leiða til að koma hjólum flugtengdrar starfsemi í gang að nýju. 

Bæjarráð skorar á ríkisvaldið að styðja við sveitarfélagið vegna mikils samdráttar í tekjum þess, þannig að þau geti haldið uppi eðlilegri þjónustu við íbúana.