Nýjast á Local Suðurnes

Haukur Helgi klár í næsta leik

Landsliðsmaðurinn Haukur Helgi Pálsson er klár í slaginn og mun leika næsta heimaleik Njarðvíkur gegn Vestra sem fram fer n.k. föstudag.

„Ég er tilbúinn í nokkrar mínútur núna gegn Vestra en stefni að því að vera orðinn nokkuð sprækur í næsta bikarleik,“ sagði Haukur í samtali við heimasíðu UMFN. Sá leikur er gegn Valsmönnum 13. desember.

„Maður er að reyna að vera skynsamur og fara ekki of geyst í hlutina. Það á allt að vera gróðið en nú vantar bara upp á snerpu, sprengikraft og leikform.“

Haukur meiddist alvarlega á ökkla í marsmánuði 2021, þá sem leikmaður Morabanc Andorra. Hann hefur ekkert leikið síðan þá en hann samdi við Njarðvíkinga í sumar til næstu þriggja ára.