Veðurstofa varar við stormi síðdegis á föstudag
Veðurstofa Íslands varar við stormi á landinu síðdegis á morgun föstudag, á vefsíðu Veðurstofunnar má finna athugasemdir veðurfræðings en þar segir meðal annars ekki sé ráðlegt að vera á ferðinni með suður-ströndinni seinni partinn á morgun.
Búist er við ofsaveðri (meðalvindur yfir 28 m/s) síðdegis á morgun með S-ströndinni. Úrkoma á þessum slóðum byrjar sem snjókoma, en færir sig yfir í slyddu með tilheyrandi krapa á vegum. Það verður því ekkert ferðaveður með S-ströndinni síðdegis á morgun.
Auglýsing: Jólagjöfin í ár?
Versta veðrið verður syðst, en það hvessir einnig annars staðar á landinu og undir kvöld verður víða orðið norðaustan hvassviðri eða stormur (15-23 m/s) með skafrenningi og síðar snjókomu þegar úrkomubakkinn færir sig norður yfir landið. Athygli er einnig vakin á því að á laugardaginn er útlit fyrir norðan storm með stórhríð á N-verðu landinu, en S-lands verða stöku él og skafrenningur. Austfirðir gætu sloppið framan af laugardegi í mun hægari vindi, en síðdegis á laugardag hvessir einnig þar með ofankomu.
Að lokum er útlit fyrir að lægi mikið á sunnudag og létti til, en þá má búast við talsverðu frosti.