Tekin með kókaín í endaþarmi og leggöngum
![amfetamin logr](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2019/05/amfetamin-logr.jpg?resize=620%2C264)
Lögreglan á Suðurnesjum hefur að undanförnu haft til rannsóknar mál er upp kom nýverið þegar tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar stöðvuðu konu á fimmtugsaldri vegna gruns um að hún væri með fíkniefni innvortis.
Hún reyndist hafa falið samtals sex pakkningar af kókaíni í endaþarmi og leggöngum. Um var að ræða tæp 200 grömm af efninu. Umrædd kona er erlendur ríkisborgari en búsett hér á landi.