Nýjast á Local Suðurnes

Visit Reykjanesbær komin í loftið

Reykjanesbær hefur opnað heimasíðuna Visit Reykjanesbær þar sem má nálgast margvíslegar upplýsingar um Reykjanesbæ og þá afþreyingu sem þar er í boði fyrir börn og fullorðna.

Megintilgangur síðunnar er að kynna Reykjanesbæ fyrir ferðamönnum jafnt sem heimafólki auk þess að vera alhliða vettvangur fyrir verslun og þjónustu.

Meðal efnis á síðunni er listi yfir fjölbreytta veitingastaði og gistingu á svæðinu auk upplýsinga um samgöngur. Sérstakur hluti er svo helgaður útivist og má þar til að mynda finna hinar ýmsu gönguleiðir á Reykjanesinu.

Á síðunni er einnig viðburðadagatal með yfirliti yfir helstu viðburði sem fram fara í bænum og þar er hægt að senda inn nýja viðburði og uppákomur til birtingar í dagatalinu.

Markmiðið er að Visit Reykjanesbær verði í framtíðinni sá staður þar sem hentugast er að nálgast upplýsingar um Reykjanesbæ þannig að bæjarbúar, gestir og ferðamenn getið notið þess sem sveitarfélagið hefur upp á að bjóða.