Nýjast á Local Suðurnes

Hækka styrki sem snúa að börnum og unglingum – Hvatagreiðslur hækka í 28.000 krónur

Unnið er að því að efna málefnasamning sem núverandi meirihlutasamstarf í Reykjanesbæ byggir meðal annars á og er einn liður í samningnum að hvatagreiðslur til barna og unglina verði hækkaðar á kjörtímabilinu.

Á bæjarstjórnarfundi í gær kom fram að bæturnar hafi verið 7.000 krónur í upphafi kjörtímabils, en hafi hækkað um 7.000 krónur á ári frá því samstarf núverandi meirihluta tók við og verða nú kr. 28.000.-.

Þá hefur verið tekin ákvörðun um að hækka þjálfarastyrki til íþróttafélaga um kr. 6.000.000.- til þess auðvelda þeim að ráða til sín menntaða þjálfara og styrkja það forvarnarstarf sem unnið er af hálfu íþróttafélaganna.

Þá verða einnig veittir fjármunir til þess að taka á leigu húsnæði sem hýsa mun allar bardagaíþróttir á einum stað. Þá var einnig ýmsum velferðarmálum hrint af stað á þessu ári s.s. afsláttur systkina milli skólastiga og gjaldfrjáls ritföng í skólum.