Loka fyrir aðgang að gosstöðvum vegna mengunar

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um loka Meradalaleið (öllu eldgosasvæðinu) upp að gosstöðvunum. Er það gert til að tryggja öryggi ferðamanna og viðbragðsaðila. Mikil mengun er á svæðinu og þá ekki síst vegna gróðurelda.
Lögreglustjóri getur því miður ekki tryggt öryggi þeirra sem inn á svæðið fara við þessar aðstæður. Þá hætta mjög margir sér inn á skilgreint hættusvæði og hundsa fyrirmæli viðbragðsaðila.
Hvasst verður í dag og á morgun við gosstöðvarnar og vindátt óhagstæð göngufólki.
Lokun tekur þegar gildi og verður ákvörðun lögreglustjóra endurskoðuð eftir fund viðbragsaðila kl. 9 laugardaginn 15. júlí nk.