Nýjast á Local Suðurnes

Safnar á Karolinafund fyrir endurgerð Stephen King myndar

Njarðvíkingurinn Elfar Þór Guðbjartsson, hefur hafið söfnun á vef Karolinafund, en kvikmyndagerðamaðurinn ungi fékk á dögunum leyfi til að framleiða stutta kvikmynd, sem byggð er á smásögu Stephen King, Popsy, eða PABBSI, eins og það útleggst á Íslensku.

Gerð myndarinnar er hluti af námi Elfars við Kvikmyndaskóla Íslands, en leyfið til framleiðslunnar fékk Elfar í gegnum verkefni á vegum Stephen King, Stephen King´s Dollar Babies, sem miðar að því að aðstoða nema í kvikmyndafræðum við framleiðslu kvikmynda.

Allir sem styrkja verkefnið fá boðsmiða á frumsýningu myndarinnar, en með því að leggja meira til en lágmarksupphæðina er möguleiki á ýmsum öðrum fríðindum.