Nýjast á Local Suðurnes

Hundur beit barn

Tilkynning um að hundur hefði bitið barn barst lögreglunni á Suðurnesjum í vikunni. Stúlkan, ellefu ára gömul, sem fyrir þessu varð var á gangi með hund fjölskyldu sinnar þegar laus hundur kom aftan að henni og beit hana til blóðs í hönd og læri.

Lögregla ræddi við eiganda hundsins og send var tilkynning á Matvælastofnun og Heilbrigðiseftirlitið, segir í tilkynningu frá lögreglu, en ekki liggur fyrir hvort hundurinn verður aflífaður eða ekki.