Nýjast á Local Suðurnes

Reynt verður að lágmarka ónæði vegna flugumferðar yfir byggðir Reykjanesbæjar

Reynt verður að lágmarka ónæði flugumferðar yfir byggðir Reykjanesbæjar með því að notast við flugtaksferla sem minnkað háhvaða og að beina flugumferð út af Hvalsnesi. Þetta kom fram á fundi Kjartans Más Kjartanssonar bæjarstjóra og Guðlaugs Helga Sigurjónssonar sviðsstjóra umhverfissviðs með Haraldi Ólafssyni yfirflugumferðarstjóra í Flugturninum á Keflavíkurflugvelli og Þresti Söring framkvæmdastjóra Keflavíkurflugvallar í gær.

Norður-suður flugbraut Keflavíkurflugvallar verður lokuð í allt sumar vegna malbikunarframkvæmda. Áætluð verklok eru í lok september. Á meðan mun öll flugumferð fara um austur-vestur brautina. Flugvélar sem taka á loft í austur eða koma til lendingar úr austri munu því fara yfir byggð í Njarðvík í meira mæli en þegar báðar brautirnar eru í notkun.

Nokkrir íbúar hafa kvartað, bæði til bæjaryfirvalda og Isavia, vegna aukins ónæðis vegna þessa. Af því tilefni áttu Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri og Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri Umhverfissviðs Reykjanesbæjar, fund með fulltrúum Isavia, þeim Haraldi Ólafssyni, yfirflugumferðarstjóra í Flugturninum á Keflavíkurflugvelli og Þresti Söring, framkvæmdastjóra Keflavíkurflugvallar þar sem þessi mál voru rædd.

flugumferd rnb

Fulltrúar Reykjanesbæjar og Isavia á fundi um flugumferð

Stefnt að hávaðamælingum með haustinu

Í máli Haraldar og Þrastar kom fram að ákveðið hefur verið að reyna að lágmarka ónæði vegna flugs m.a. með því að notast við flugtaksferla sem miða að því að hreyflum sé beitt þannig að þeir valdi sem minnstum hávaða. Í öðru lagi á að beina flugumferð sem mest um vestari enda flugbrautarinnar, sem liggur út af Hvalsnesi, þegar það er hægt en því tengjast margir aðrir þættir s.s. eldsneytisnotkun, flugtími o.fl.

Góður andi ríkti á fundinum og greinilegt að fulltrúar Isavia og stærstu flugfélaganna hafa ríkan vilja til að lágmarka það ónæði sem íbúar á Suðurnesjum kunna að verða fyrir vegna þessara framkvæmda í sumar. Þannig á t.d. að leggja sérstaka áherslu á notkun vestari enda brautarinnar á tímabilinu 23:00-07:00 þegar aðstæður leyfa. Einnig stendur til í haust að koma upp mælitækjum þar sem hægt verður, í gegnum heimasíðu ISAVIA, að nálgast lifandi hávaðamælingar í rauntíma.