Nýjast á Local Suðurnes

Orkusölusamningur HS Orku og Norðuráls ekki lengur í gildi

Gerðardómur hefur komist að þeirri niðurstöðu að orkusölusamningur HS Orku og Norðuráls sé ekki lengur í gildi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Orku.

Ennfremur var það niðurstaða gerðardómsins að lok samningsins væru ekki af völdum HS Orku og öllum gagnkröfum Norðuráls Helguvíkur ehf. í málinu var hafnað.

Ásgeir Margeirsson forstjóri HS Orku hf. sagði af þessu tilefni: „Við erum ánægð að þetta langvinna mál sé nú að baki. Þessi niðurstaða mun gera okkur kleift að leita nýrra samningstækifæra á Íslandi án takmarkana eftir því sem ný orka verður til reiðu.“