Nýjast á Local Suðurnes

Innkalla frosin Great Taste jarðarber

Samkaup hafa í samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja stöðvað sölu á frosnum jarðarberjum, 1.200 g pakkningum undir merkjum Great Taste, og innkalla vöruna frá neytendum sem keyptu hana í Nettó, Kjörbúðinni, Krambúðinni eða Iceland.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samkaupa. Ástæða innköllunar er að efnið omethoate mældist yfir mörkum eins og þau eru skilgreind eru í reglugerð. Matvæli sem innihalda mikið magn þessa efnis eru ekki örugg til neyslu.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
• Vörumerki: Great Taste
• Vöruheiti: Strawberry
• Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 28.07.2023
• Nettómagn: 1.200 g
• Strikamerki: 5706911001123
• Framleiðandi: Framleitt fyrir Geia Food í Danmörku
• Framleiðsluland: Kína

Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila til verslunarinnar þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.