Nýjast á Local Suðurnes

Bjóða upp á ókeypis heilsufarsskoðun

Samtakahópurinn í samstarfi við Brunavarnir Suðurnesja bjóða upp á heilsufarsskoðun í bókasafni Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, þann 6. október næstkomandi.

Um er að ræða viðburð í tengslum við Heilsu- og forvarnarviku, sem hófst í gær og stendur til 9. október næstkomandi. Mælt verður blóðþrýstingur, súrefnismettun, púls og blóðsykur.

Heilsufarsskoðunin er ókeypis og eru allir velkomnir.