Nýjast á Local Suðurnes

Yfir 600 Suðurnesjamenn gætu misst vinnuna

Mynd: Friðrik Friðriksson

Sex til sjö hundruð íbúar í Reykjanesbæ gætu misst vinnuna vegna gjaldþrots WOW Air, að sögn Friðjóns Einarssonar, formanns bæjarstjórnar.

„Við gerum ráð fyrir að þetta séu um sex til sjö hundruð manns [ í Reykjanesbæ innsk. blm. ] sem verða fyrir áhrifum af þessu áfalli. Þetta er blanda af starfsmönnum WOW og starfsmönnum allra þeirra fyrirtækja sem koma að þessum flugrekstri; hlaðmenn, veitingastaðir, rútufyrirtæki og ferðaþjónustufyrirtæki. Þannig að í heildina er ég að hugsa um að þetta sé í kringum 6-700 manns, en við fáum nánari tölur um þetta á næstu dögum.“ Segir Friðjón.