Nýjast á Local Suðurnes

Davíð Freyr valinn í úrtakslandsliðshópinn í blaki

Davíð Freyr Sveinsson fyrsti Suðurnesjamaðurinn til að vera valinn í úratakslandsliðshóp í blaki, en Davíð sem leikur með Blakdeild Keflavíkur hefur verið valinn í úrtakshóp fyrir landslið Íslands skipað leikmönnum 19 ára og yngri..

U19 ára landslið drengja fer til Kettering í Englandi dagana 26.-30. október 2017 til að taka þátt í NEVZA móti. Liðið hefur undirbúning sinn um næstu helgi þegar liðið tekur þátt í haustmóti BLÍ.