Nýjast á Local Suðurnes

Kominn tími á trampólínin – Gult í kortunum

Veðurstofa gerir ráð fyrir Suðvestan 15-23 m/s og vindhviður víða yfir 30 m/s, og er gul viðvörun í gildi frá klukkan 21 annað kvöld, 24. september til klukkan 06 á sunnudagsmorgun.

Varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Fólk er hvatt til að ganga frá lausamunum eins og garðhúsgögnum og trampólínum.