Nýjast á Local Suðurnes

Bólusetningar gegn Inflúensu og Covid-19

Bólusetningar gegn Inflúensu og örvunarbólusetning gegn Covid-19 fyrir 60 ára og eldri sem skráðir eru hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefjast þann 27. september næstkomandi. Að þessu sinni er bólusett í Hljómahöll.

þriðjudagurinn 27. september er ætlaður fyrir forgangshópa og 60 ára og eldri og
miðvikudagurinn 5. október fyrir forgangshópa og aðra. Bólusett er í matsal Víðihlíðar í Grindavík á sömu dögum og er það vefbókanlegt.

Tímanir eru vefbókanlegir á heilsuvera.is og hvetjum við alla til að nýta tæknina og minnka álagið á símsvörun á HSS, segir í tilkynningu frá HSS.

Sóttvarnarlæknir mælir með að inflúensubóluefni og COVID-19 bóluefni verði gefin áhættuhópum samhliða ef tímasetning síðustu COVID-19 bólusetningar leyfir (a.m.k. 4 mánuðir liðnir). Nú er mælt með Covid örvunarbólusetningu (4. bólusetning) fyrir 60 ára og eldri.

Forgangshópar í bólusetningu eru:

• Þau sem eru 60 ára eða eldri
• Fólk með langvinna sjúkdóma, s.s. hjarta-, lungna-, nýrna- og
lifrarsjúkdóma, sykursýki, illkynja sjúkdóma og aðra
ónæmisbælandi sjúkdóma.
• Þungaðar konur

Þessir hópar fá bóluefnið frítt en borga komugjald, 500 kr., nema eldri borgarar og öryrkjar sem eru undanþegnir komugjaldi

ATH: Bólusett er í almenningsrými. Til að flýta fyrir er best að vera í stutterma bol eða stutterma skyrtu til að auðvelt sé að bera handlegg.

Þau sem eru yngri en 60 ára og tilheyra ekki áhættuhópum samkvæmt skilgreiningu Embættis landlæknis borga bæði komugjald, 500 kr, og bóluefnið (Vaxigrip Tetra) sem kostar nú 1.800 kr.

Fyrir þá sem ekki komast þessa daga verður bólusetning í boði á heilsugæslunni í framhaldinu og mun verða hægt að bóka tíma á heilsuvera.is, segir einnig í tilkynningunni.