Nýjast á Local Suðurnes

Ókeypis tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hljómahöll

Mynd; Sinfóníuhljómsveit Íslands

Reykjanesbær býður bæjarbúum upp á tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hljómahöll þriðjudaginn 3. september kl. 19:30  í tilefni af 25 ára afmæli Reykjanesbæjar. Tónleikarnir eru jafnframt upptaktur að Ljósanótt sem haldin er hátíðlega í Reykjanesbæ 4. – 8. september. Ókeypis er á tónleikana svo lengi sem húsrúm leyfir. Þeir sem vilja tryggja sér aðgang að tónleikunum geta nálgast útprentaða miða í móttöku Hljómahallar, að Hjallavegi 2 í Njarðvík, frá kl. 13:00 þann 27. ágúst og fram að tónleikum. Hámark fjórir miðar á mann.

Á tónleikunum flytur sópransöngkonan Bylgja Dís Gunnarsdóttir nokkur vinsæl sönglög og aríur með hljómsveitinni en hún hefur sungið víða, meðal annars aðalhlutverkið í Toscu í rómaðri sýningu í Keflavíkurkirkju árið 2011, og hún kennir við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

Á tónleikunum hljóma einnig valdir kaflar úr vinsælli leikhústónlist Griegs við Pétur Gaut, meðal annars Morgunstemning og Í höll Dofrakonungs. Stefán Jón Bernharðsson, sem leiðir horndeild Sinfóníuhljómsveitarinnar, leikur einleik í hornkonserti sem Mozart samdi á hátindi ferils síns, um svipað leyti og hann samdi óperuna Brúðkaup Fígarós. Tónleikunum lýkur með hinni stórfenglegu fimmtu sinfóníu Sibeliusar. Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason, aðalgestastjórnandi sinfóníuhljómsveitarinnar.

Fyrr um daginn mun strengjakvartett skipaður hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands leika fyrir heimilisfólk á Hrafnistu Nesvöllum og Hlévangi ásamt því að heimsækja skjólstæðinga Rauða krossins á Suðurnesjum.

Bjöllukór Tónlistaskóla Reykjanesbæjar leikur í anddyri Hljómahallarinnar frá kl. 19:00 og fram að tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar.

Efnisskrá

Edvard Grieg Pétur Gautur, valdir þættir
W.A. Mozart Hornkonsert nr. 3
Sigfús Einarsson Draumalandið
Sigvaldi Kaldalóns Ave María
Antonín Dvorák Söngur mánans úr Rusalka
Giacomo Puccini Vissi d’arte úr Tosca
Jean Sibelius Sinfónía nr. 5

Hljómsveitastjóri

Daníel Bjarnason

Einleikari

Stefán Jón Bernharðsson

Einsöngvari

Bylgja Dís Gunnarsdóttir

Nánari upplýsingar um tónleikana og listamenn má nálagst á vef Sinfoníuhljómsveitarinnar