Nýjast á Local Suðurnes

Tónleikar til styrktar Guðmundi Atla í Hljómahöll

Í desember síðastliðnum greindist hinn sjö ára gamli Guðmundur Atli með bráðahvítblæði, Guðmundur sem er nemandi í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ býr hjá ömmu sinni og afa sem standa eins og klettar við hlið hans og gera allt til þess að reyna að stytta honum stundirnar á spítalanum. Nokkrir aðilar hafa tekið sig saman um að halda tónleika til styrktar Guðmundi. Viðburðurinn sem gengur undir nafninu “Hlýja, von og kærleikur” fer fram í Hljómahöll þann 6. febrúar næstkomandi.

Guðmundur sem eyddi jólum og áramótum upp á barnaspítala hefur þrátt fyrir veikindin haldið í gleðina og brosið, enda einstaklega brosmildur og lífsglaður drengur, segir á Facebook-síðu sem sett hefur verið upp í tengslum við tónleikana.

Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna var stofnað 1991 til að styðja við bakið á krabbameinsveikum börnum og fjölskyldum þeirra, bæði fjárhagslega og félagslega auk þess að berjast fyrir réttindum þeirra gagnvart hinu opinbera.

Ákveðið hefur verið að halda tónleika til styrktar Guðmundi og Félagi krabbameinssjúkra barna, tengil á facebook-síðuna má finna hér.

Hópur af frábærum tónlistarmönnum voru tilbúin að taka þátt og gefa vinnu sína.

Fram koma:

Páll Óskar

Valdimar Guðmundsson

Blaz Roca

Herra Hnetusmjör

María Ólafs

Shades of Reykjavík

Einnig koma bekkjarsystkini Guðmundar fram og Sesselja Ósk jólastjarna.

Styrktaraðilar eru Kaffitá, Ölgerðin og Vífilfell

Tónleikarnir verða haldnir í Hljómahöll/Stapa, Reykjanesbæ, og munu þeir hefjast kl.16.
Miðaverð er 1500 kr ef keypt er á tix.is, en 2000 kr við hurð.
Veitingasala verður á staðnum.

Ef þú kemst ekki, eða vilt greiða meira fyrir miðann, þá eru frjáls framlög að sjálfsögðu vel þegin.
Þau eru lögð inná þessa reikninga hér:

Guðmundur Atli:
0542-14-404971
190808-4080

Félag krabbameinssjúkra barna:
301-26-545
630591-1129