Tvær bílveltur á Reykjanesbraut
![logreglan bill](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/08/logreglan-bill1.jpg?resize=620%2C264)
Það hefur verið í nógu að snúast hjá lögreglumönnum á Suðurnesjum yfir hátíðirnar en talsvert hefur verið um umferðaróhöpp í umdæminu.
Tvær bílveltur urðu á Reykjanesbraut. Í öðru tilvikinu þurfti að klippa ökumann og farþega úr bifreiðinni og voru þeir fluttir á bráðamóttöku Landspítala. Meiðsl þeirra reyndust sem betur fer ekki alvarleg, segir á vef mbl.is
Þá urðu tvö óhöpp við framúrakstur, einnig á Reykjanesbraut, en engin slys urðu á fólki. Í öðru tilvikinu ók ökumaður á bifreiðina sem hann hugðist taka fram úr og stakk svo af. Bifreiðin snérist á veginum við áreksturinn og endaði á vegriði.