Nýjast á Local Suðurnes

Reykjanesbær býður ókeypis hálkuvörn

Umhverfissvið Reykjanesbæjar býður bæjarbúum að nálgast sand í fötu sér að kostnaðarlausu á fjórum stöðum í sveitarfélaginu. Með þessu vill Reykjanesbær leggja sitt af mörkum til að draga úr hálkuslysum.

Hægt er að nálgast sandinn á plani við Heiðarberg, við Reykjaneshöll, við Þrastartjörn og á malarplani við Valhallarbraut.

sandur i fotu stadss