Nýjast á Local Suðurnes

Njarðvíkingar fá öflugann frákastara

Njarðvíkingar hafa fengið liðsstyrk fyrir átökin í Subwaydeild karla sem hefst aftur á sunnudaginn, en samið hefur verið við Spánverjann Nacho Martin.

Martin er 205 cm á hæð og mun styrkja liðið inn í teig en Njarðurvíkurliðið er t.d. í neðsta sæti yfir fráköst í deildinni það sem af er tímabili. Martin er mikill reynslubolti og hefur leikið allan sinn feril á Spáni en hann er núna 39 ára og kemur frá CB Cornella sem leikur í spænsku 3. deildinni. Síðustu tvö tímabil á undan lék hann í næst efstu deild en lengi vel átti hann farsælan feril í efstu deild. Þá er hann í landsliði Spánar í 3 á 3 körfubolta.

„Ég er ánægður með að hafa landað Nacho þar sem markaðurinn þegar kemur að bosman-leikmönnum er mjög erfiður. Hann tikkar í þau box sem við viljum en hann getur spilað með bakið í körfuna, skotið og frákastað. Það er mikilvægt að hann sé bæði í formi og leikæfingu. Þá fær hann frábær meðmæli sem karakter og það er ekki síður mikilvægt en getan inni á vellinum. Við höfum lagt áherslu á að vera með lið sem spilar liðskörfubolta og því erum við alltaf að leita af leikmönnum sem hafa háa körfuboltagreind, sem kemur oftast með reynslunni,“ sagði Benedikt Guðmundsson þjálfari í samtali við UMFN.is

Mynd: FIBA