Nýjast á Local Suðurnes

Framkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2 fellt úr gildi

Héraðsdómur Reykjaness felldi þann 22. júlí síðastliðinn úr gildi framkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2 sem Sveitarfélagið Vogar gaf út.

Í dómnum er tekist á um skilyrði fyrir útgáfu framkvæmdaleyfa í lok lögbundinna ferla sem staðið hafa yfir um árabil. Forsendur dómsins komu Landsneti á óvart og er verið að fara yfir hann og meta hvort ástæða sé til áfrýjunar til Hæstaréttar.

Í tilkynningu frá Landsneti segir að dómurinn hafi ekki áhrif á vinnu við Suðurnesjalínu 2 þar sem framkvæmdir hafa nú þegar verið settar á bið.