Nýjast á Local Suðurnes

Fjölgar í einangrun en fækkar í sóttkví

Sec einstaklingar hafa greinst með kórónuveirusmit á Suðurnesjum undanfarna daga og eru í einangrun. Þetta kemur fram á vef Embættis landlæknis og Almannavarna, covid.is. Síðustu daga hafa 2-4 verið í einangrun á svæðinu.

22 einstaklingar sæta sóttkví á svæðinu samkvæmt sama vef, en samkvæmt tölum í gær voru þeir 28 þannig að fækkað hefur um sex einstaklinga í sóttkví á milli daga.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja birtir reglulega fréttir af starfseminni á Facebook og eru Suðurnesjamenn eru hvattir til að fylgja HSS á Facebook.