Nýjast á Local Suðurnes

Dópaður ökumaður reyndi að komast undan lögreglu

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Nokkrir ökumenn hafa verið teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum,en mikil aukning hefur verið á Suðurnesjum í brotaflokknum undanfarin ár. Í fyrrinótt reyndi einn þeirra að komast undan lögreglu eftir að honum höfðu verið gefin merki um að stöðva aksturinn. Hann var handtekinn og játaði kannabisneyslu. Í bifreið hans fundust kannabisefni. Hann ók að auki sviptur ökuréttindum.

Annar ók með tvö ung börn sín í bifreiðinni og var atvikið því tilkynnt barnaverndarnefnd. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð vegna rökstudds gruns um fíkniefnaakstur.

Hinn þriðji hafði aldrei öðlast ökuréttindi og sá fjórði var með meint amfetamín í vörslum sínum.