HS Veitur í hálfa öld – Sjáðu myndirnar frá afmælisfagnaðinum!

HS Veitur fagna á árinu 50 árum í þjónustu við Suðurnesjafólk og buðu af því tilefni til fagnaðar í Hljómahöll á dögunum.
Fögnuðurinn gekk vonum framar og mættu tæplega tvö hundruð manns í Hljómahöllina og fögnuðu þessum merku tímamótum.
Boðið var upp á fyrirlestra auk sýningar á ýmsum munum sem viðkoma starfseminni bæði nú og frá fyrri tíð.








