Plús hjá Reykjanesbæ

Ársreikningur Reykjanesbæjar fyrir árið 2024 var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í gær og er niðurstaðan jákvæð sem nemur 1,1 milljarði króna í A-hluta bæjarsjóðs og 2,5 milljörðum í A+B hluta samstæðu Reykjanesbæjar.
Þetta kemur fram í Facebook-færslu bæjarstjórans, Kjartans Más Kjartanssonar, sem er ánægður með árangurinn og endar færsluna á skilaboðum til starfsfólks sveitarfélagsins ‘Vel gert starfsfólk og bæjarstjórn!”
Önnur umræða og afgreiðsla fer svo fram þann 6. maí næstkomandi.