Logi leggur eitt skópar á hilluna
Körfuknattleiksmaðurinn Logi Gunnarsson ætlar að leggja landsliðsskóna á hilluna að loknum landsleiknum við Tékka á sunnudaginn í Laugardalshöll. Logi mun þó nýta Njarðvíkurparið áfram á parketinu og leika áfram með uppeldisfélaginu í Dominos-deildinni.
Logi staðfesti þetta í samtali við Vísi í dag. Logi er fjórði leikjahæsti landsliðsmaður Íslands í körfuknattleik, en hann hefur leikið 146 leiki.