Nýjast á Local Suðurnes

Fjöldi umferðaróhappa á Suðurnesjum – Dópaður festist á hringtorgi

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Ökumaður sem var á ferð eftir Skógarbraut í Reykjanesbæ í vikunni missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún hafnaði á hliðinni ofan í skurði við hlið akbrautarinnar. Önnur bifreið lenti utan vegar á Grindavíkurvegi af sömu ástæðum.

Þá varð árekstur við Stekk og ók sá sem talinn er hafa valdið honum á brott án þess að skeyta um hinn ökumanninn. Loks varð bílvelta á Garðvegi og fór sú bifreið eina og hálfa veltu áður en hún staðnæmdist á hliðinni. Á þeim sama vegi varð einnig umferðaróhapp þegar ökumaður virti ekki biðskyldumerki og ók á aðra bifreið sem ekið var eftir Garðvegi.

Auk ofantalinna óhappa handtók lögreglan á Suðurnesjum ökumann vegna gruns um fíkniefnaakstur. Sá hafði ekið bifreið sinni upp á hringtorg við Fitjar þegar lögreglumenn komu á vettvang. Ökumaðurinn viðurkenndi neyslu fíkniefna.

Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að engin alvarleg slys hafi orðið á fólki í þessum óhöppum.