sudurnes.net
Fjöldi umferðaróhappa á Suðurnesjum - Dópaður festist á hringtorgi - Local Sudurnes
Ökumaður sem var á ferð eftir Skógarbraut í Reykjanesbæ í vikunni missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún hafnaði á hliðinni ofan í skurði við hlið akbrautarinnar. Önnur bifreið lenti utan vegar á Grindavíkurvegi af sömu ástæðum. Þá varð árekstur við Stekk og ók sá sem talinn er hafa valdið honum á brott án þess að skeyta um hinn ökumanninn. Loks varð bílvelta á Garðvegi og fór sú bifreið eina og hálfa veltu áður en hún staðnæmdist á hliðinni. Á þeim sama vegi varð einnig umferðaróhapp þegar ökumaður virti ekki biðskyldumerki og ók á aðra bifreið sem ekið var eftir Garðvegi. Auk ofantalinna óhappa handtók lögreglan á Suðurnesjum ökumann vegna gruns um fíkniefnaakstur. Sá hafði ekið bifreið sinni upp á hringtorg við Fitjar þegar lögreglumenn komu á vettvang. Ökumaðurinn viðurkenndi neyslu fíkniefna. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að engin alvarleg slys hafi orðið á fólki í þessum óhöppum. Meira frá SuðurnesjumAflýsa óvissustigi vegna eldgossVatnsmelóna, gúrka og minta – Fáránlega flott blandaMætti rúllandi dekki á ReykjanesbrautLögreglan stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í heimahúsiUST fylgist náið með USi – Mæligilda fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins að vænta í lok aprílFimm ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur um páskaFjórir fóru út af [...]