Nýjast á Local Suðurnes

Synir Rúnars á trúnó í Hljómahöll

Synir Rúnars Júlíussonar, þeir Júlíus og Baldur, munu fara yfir hæðir og lægðir í fjölbreyttum ferli Rúnars þar sem kennir ýmissa grasa, á tónleikum sem haldnir verða í apríl. Rúnar reyndi fyrir sér í rokki og róli, kántrí og western, reggí, disco og funk tónlist og því verður af nægu að tæka á tónleikunum, sem eru hluti af Trúnó-tónleikaröðinni.

Þeim til halds og trausts verður hljómsveit skipuð Arnari Gíslasyni á trommur, Inga Birni Ingasyni á bassa og Birki Rafni Gíslasyni á gítar.

Tónleikarnir verða á afmælisdegi Rúnars 13. apríl í Bergi, Hljómahöll og hefjast kl. 20.