Nýjast á Local Suðurnes

Stolið frá skátum

Þrjú þjófnaðarmál voru tilkynnt til lögreglunnar á Suðurnesjum í síðustu viku. Brotist var inn í dósasöfnunarkassa skátafélags en ekki er vitað um verðmæti þess magns sem stolið var.

Þá var tilkynnt um þjófnað á nær 130 þúsunda króna úlpu úr verslun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Loks var brotist inn í bílskúr og þaðan stolið hjólsög og tveimur borvélum.