Nýjast á Local Suðurnes

Lögregla leitar að Kristínu Júlíönu

Lög­regl­an á Suður­nesj­um lýs­ir eft­ir Krist­ínu Júlí­önu Bald­urs­dótt­ur sem er þrett­án ára göm­ul en hún skilaði sér ekki heim að lokn­um grunn­skóla í Sand­gerði í gær og ekki er vitað um ferðir henn­ar eft­ir það, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá lög­reglu.

Krist­ín Júlí­ana er 172 cm á hæð og þétt­vax­in, með sítt rautt hár. Hún var klædd í svarta úlpu með skinnkraga, svört­um leggings, svört­um skóm og með hello kitty tösku. Þeir sem verða var­ir við Krist­ínu Júlí­önu eru vin­sam­leg­ast beðnir að hafa sam­band við lög­regl­una á Suður­nesj­um í síma 444-2299 eða 444-2200.