Nýjast á Local Suðurnes

Albert sæmdur fálkaorðu

Albert Albertsson er meðal annars hugmyndasmiður að Auðlindagarði HS Orku

Forseti Íslands sæmdi tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu í dag. Þeirra á meðal er Albert Albertsson fyrrverandi aðstoðarforstjóri Hitaveitu Suðurnesja, en hann hlaut riddarakross fyrir framlag á vettvangi jarðhitanýtingar.

Albert Albertsson er meðal annars hugmyndasmiðurinn að Auðlindagarði HS Orku, en Auðlindagarðurinn sem byggst hefur upp í grennd við jarðvarmaver HS Orku á Suðurnesjum er einstakur á heimsvísu og má rekja ríflega 500 störf beint til Auðlindagarðs HS Orku, auk annarra afleiddra starfa.

Eftirtaldir hlutu orður í dag:

1. Albert Albertsson fyrrverandi aðstoðarforstjóri Hitaveitu Suðurnesja, Reykjanesbæ, riddarakross fyrir framlag á vettvangi jarðhitanýtingar

2. Álfrún Gunnlaugsdóttir rithöfundur og fyrrverandi prófessor, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til íslenskra bókmennta og kennslu bókmennta á háskólastigi

3. Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar

4. Gunnar V. Andrésson ljósmyndari, Mosfellsbæ, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenska fjölmiðla

5. Halldóra Björnsdóttir íþróttafræðingur, Mosfellsbæ, riddarakross fyrir framlag til heilsuverndar og lýðheilsu

6. Haukur Ágústsson fyrrverandi skólastjóri, Akureyri, riddarakross fyrir framlag á vettvangi skólamála og fjarkennslu

7. Lárus Blöndal forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Garðabæ, riddarakross fyrir störf í þágu íþróttahreyfingarinnar

8. Ólafur Dýrmundsson fyrrverandi ráðunautur, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslensks landbúnaðar

9. Ólöf Nordal myndlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar myndlistar

10. Sigfús Kristinsson trésmíðameistari, Selfossi, riddarakross fyrir framlag til atvinnulífs og iðnmennta í heimabyggð

11. Sigþrúður Guðmundsdóttir forstöðukona Kvennaathvarfs, Reykjavík, riddarakross fyrir störf að velferð og öryggi kvenna

12. Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til samhjálpar og baráttu gegn fátækt í samfélaginu