sudurnes.net
Albert sæmdur fálkaorðu - Local Sudurnes
Forseti Íslands sæmdi tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu í dag. Þeirra á meðal er Albert Albertsson fyrrverandi aðstoðarforstjóri Hitaveitu Suðurnesja, en hann hlaut riddarakross fyrir framlag á vettvangi jarðhitanýtingar. Albert Albertsson er meðal annars hugmyndasmiðurinn að Auðlindagarði HS Orku, en Auðlindagarðurinn sem byggst hefur upp í grennd við jarðvarmaver HS Orku á Suðurnesjum er einstakur á heimsvísu og má rekja ríflega 500 störf beint til Auðlindagarðs HS Orku, auk annarra afleiddra starfa. Eftirtaldir hlutu orður í dag: 1. Albert Albertsson fyrrverandi aðstoðarforstjóri Hitaveitu Suðurnesja, Reykjanesbæ, riddarakross fyrir framlag á vettvangi jarðhitanýtingar 2. Álfrún Gunnlaugsdóttir rithöfundur og fyrrverandi prófessor, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til íslenskra bókmennta og kennslu bókmennta á háskólastigi 3. Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar 4. Gunnar V. Andrésson ljósmyndari, Mosfellsbæ, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenska fjölmiðla 5. Halldóra Björnsdóttir íþróttafræðingur, Mosfellsbæ, riddarakross fyrir framlag til heilsuverndar og lýðheilsu 6. Haukur Ágústsson fyrrverandi skólastjóri, Akureyri, riddarakross fyrir framlag á vettvangi skólamála og fjarkennslu 7. Lárus Blöndal forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Garðabæ, riddarakross fyrir störf í þágu íþróttahreyfingarinnar 8. Ólafur Dýrmundsson fyrrverandi ráðunautur, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslensks landbúnaðar 9. Ólöf Nordal myndlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar myndlistar 10. Sigfús [...]