Nýjast á Local Suðurnes

Verð í sund hækkar fyrir fullorðna – Óbreytt verð fyrir börn

Íþrótta- og tómstundaráð Reykjanesbæjar hefur lagt til að stakt gjald  fullorðinna í sund verði hækkað úr 570 krónum  í 700 kr. frá og með 1. janúar 2016. Þetta kemur fram í fundargerð ráðsins frá 1. desember síðastliðnum.

Um leið haldast sundkort óbreytt í verði ásamt öllum gjöldum fyrir börn í laugarnar, það mun því enn verða ókeypis fyrir börn að 10 ára aldri og kosta 150 krónur fyrir 10-15 ára.

Þá kemur fram í bókun ráðsins að hagstæðast verði að kaupa 30 miða kort sem muni kosta 8.965 sem gerir 298 krónur fyrir sundferðina. Árskortið hækkar um 750 krónur og verður á 25.750 krónur.

Þessar hækkanir eru þó háðar samþykki bæjarstjórnar sem tekur málið til afgreiðslu á fundi þann 15. desember.