Fyrirtæki í eigu Suðurnesjamanna arðbærast í byggingageiranum
![20220306_194716](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2022/03/20220306_194716.jpg?resize=620%2C264)
Rafverktakinn Rafholt ber af þegar horft er til miðgildis arðsemi eigin fjár á síðastliðnum fimm árum í byggingastarfsemi- og mannvirkjagerð samkvæmt samantekt Frjálsrar verslunar og Creditinfo. Fyrirtækið er í meirihlutaeigu Suðurnesjamanna, þeirra Helga Rafnssonar og Vilhjálms M. Vilhjálmssonar.
Þetta kemur fram á vef Viðskiptablaðsins, en þar segir að miðgildi arðsemi eigin fjár fyrirtækisins á tímabilinu hafi numið rétt rúmlega 61%. Til samanburðar var næsta fyrirtæki þar á eftir með um 37%.
Fyrirtækið var stofnað árið 2002 og er í dag einn af stærri atvinnurekendum rafverktöku á Íslandi með um 100 starfsmenn og verktaka á sínum snærum.
Eigendur Rafholts eru Helgi I. Rafnsson framkvæmdastjóri, Grétar Magnússon stjórnarformaður, Vilhjálmur M. Vilhjálmsson þjónustustjóri, Borgþór Grétarsson skrifstofu- og gæðastjóri, Jóhann R. Júlíusson yfirmaður smáspennudeildar og Rúnar Kjartan Jónsson yfirverkstjóri á Suðurnesjum.
Mynd: Rafholt.is