Nýjast á Local Suðurnes

Perla Sóley sigraði í Söngkeppni Kragans

Síðastliðinn föstudag var söngkeppni Kragans haldin í Stapanum að viðstöddum 200 unglingum af frà Garðabæ, Mosfellsbæ,  Álftanesi, Seltjarnarnesi, Vogum, Grindavík, Reykjanesbæ, Sandgerði og Garði.

Haldin var undankeppni fyrir söngkeppni Samfés, en hún fer fram þann 5. mars í Laugardalshöll.  Alls voru 11 atriði sem tóku þátt og þau fjögur atriði sem komust áfram voru frá Fjörheimum, Bólinu, Selinu og Elítuni.

Fyrir hönd Fjörheima var það Perla Sóley Arinbjarnardóttir sem komst áfram, en hún söng lagið Jar of hearts óaðfinnanlega. Hún mun því taka þátt í söngkeppni Samfés fyrir hönd Fjörheima.

Dómarar keppninnar voru þau Elíza Newman, Dagný Gísladóttir, Baldur Guðmundsson og Smári Guðmundsson.

Eftir keppnina var haldið ball með Dj.Sveppz og skemmtu sér allir konunglega.