Nýjast á Local Suðurnes

Helga Þórsdóttir ráðin í starf safnstjóra Listasafns Reykjanesbæjar

Helga Þórsdóttir hefur verið ráðin í starf safnstjóra Listasafns Reykjanesbæjar. Hún mun hefja störf í byrjun febrúar.

Helga er með brottfararpróf frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands ásamt því að hafa lokið M.A. í myndlist frá De l’ecole Nationale d’Arts de Cergy-Pontoise Mention og M.A. í menningarfræði frá Háskóla Íslands. Þá hefur hún einnig stundað nám í innanhúsarkitektúr í Frakklandi og leiðsögu í Leiðsögumannaskólanum í Kópavogi.

Hún hefur starfað í Byggðasafni Vestfjarða frá árinu 2016 meðal annars sem forstöðukona. Þá hefur hún einnig komið víða við í sýningarstjórn og textaskrifum um myndlist.