Nýjast á Local Suðurnes

Aðvörunarlúðrar settir upp við Bláa lónið

Aðvör­un­ar­lúðrar verða settir upp við Bláa lónið þannig að hljóðmerki frá lúðrun­um nái strax til alls starfs­fólks auk gesta á öll­um úti- og inn­i­svæðum lóns­ins.

Lúðrarnir hafa verið pantaðir og munu vera á leið til landsins, samkvæmt umfjöllun mbl.is. Þar til lúðrarn­ir kom­ast í gagnið mun verða not­ast við neyðaráætlan­ir og nú­ver­andi viðvör­un­ar­kerfi sem sé í fullu gildi.

Bláa lónið er lokað í augnablikinu, en þann 29. des­em­ber næstkomandi verður staðan end­ur­met­in í kjöl­far nýs áhættumats.