Nýjast á Local Suðurnes

Talsvert um umferðaróhöpp á Suðurnesjum

Talsvert hefur verið um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Í morgun varð þriggja bíla árekstur á gatnamótum Efstahrauns og Víkurbrautar. Þá missti ökumaður stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún hafnaði í steingarði í vegkanti  og sprungu líknarbelgirnir út við áreksturinn.

Tvær bílveltur urðu í vikunni, önnur á Reykjanesbraut við Flugstöð Leifs Eiríkssonar og hin milli Rósaselstorg og flugstöðvarinnar.

Ekki urðu alvarleg meiðsl á ökumönnum né farþegum í ofangreindum tilvikum.