Nýjast á Local Suðurnes

Fá fimm mínútur til að sækja nauðsynjar – Svona fer aðgerðin fram!

Íbúar í Þórkötlustaðahverfi sem fá að fara inn til Grindavíkur fara ekki þangað á eigin bílum, heldur eingöngu í fylgd lögreglu og annara viðbragðsaðila. Lögregla ítrekar í tilkynningu að um áhættusama aðgerð sé að ræða og að íbúar fái ekki að fara inn í önnur hverfi í augnablikinu.

Tilkynning lögreglu, sem skýrir hvernig þessi aðgerð fer fram:

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa íbúum inn á skilgreint svæði í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík.

  • Íbúar sem fá að fara inn í til Grindavíkur eiga að koma á söfnunarstaðinn sem er bílastæðið við gossvæðið, við Fagradalsfjall.-

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa íbúum inn á skilgreint svæði í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík, það er eingöngu gert til þess til að sækja gæludýr og ómissandi eigur.

Þetta verður skipulögð og stýrð aðgerð undir stjórn lögreglunnar. Þessi heimild nær eingöngu til þessa tiltekna hverfis, og ekki annarra hverfa eða svæða í Grindavik. Athugið að sérstök aðgerð er í gangi til þess að sækja alla hesta í hestahverfinu norðan við Austurver.

Við ítrekum við aðra íbúa að keyra alls EKKI í átt að Grindavík og ekki safnast saman á lokunarpóstum.

Íbúar í Þórkötlustaðahverfi sem fá að fara inn til Grindavíkur fara ekki þangað á eigin bílum. Íbúar sem fá að fara inn í til Grindavíkur eiga að koma á söfnunarstaðinn sem er bílastæðið við gossvæðið, við Fagradalsfjall.

Ekki er heimilt að aka í gegnum Grindavíkurbæ, því þarf að koma um Suðurstrandarveg að austan eða frá Þorlákshöfn eða Krýsuvíkurvegi. Frá söfnunarstað verður ekið í bílum viðbragðsaðila inn í bæinn.

Heimild til þess að fara inn í bæinn er ábyrgðarhluti og ekki léttvæg ákvörðun og þýðir alls ekki að svæðið sé að öðru leyti opið fyrir umferð. Þetta verður skipulögð og stýrð aðgerð undir stjórn lögreglunnar.

Til athugunar fyrir íbúana
• Ekki fara ef þú þarft ekki nauðsynlega að fara
• Aðeins verður leyfi fyrir einn aðila að fara inn á svæðið, fyrir hvert heimili
• Skráið niður lista yfir það sem þið hyggist sækja áður en lagt er af stað
• Munið eftir húslykli
• Búr fyrir gæludýr ef þörf er á
• Poka eða annað undir muni
• Íbúar hafa stuttan tíma inni á heimilinu.
• Þau sem fara mega ekki vera með bráðaofnæmi fyrir dýrum því það verða gæludýr með í för í bakaleiðinni.
• Þetta er eingöngu til þess sækja mjög mikilvæga hluti s.s. gæludýr, lífsnauðsynleg lyf, hugsanlega vegabréf eða aðra ómissandi hluti fyrir heimilisfólk
• Heimilt verður að keyra ökutæki sem skilin voru eftir við rýmingu, út af svæðinu frá Grindavík, en eingöngu í fylgd viðbragðsaðila

Ítrekað er að þetta er ekki léttvæg ákvörðun. Þessu fylgir áhætta og því mjög mikilvægt að allir sem henni koma hlýði vandlega öllum fyrirmælum lögreglu sem stýrir þessari aðgerð. Ekki liggur fyrir hvort eða hvenær mögulegt verður að fara í samskonar leiðangra í önnur hverfi. Þórkötlusvæðið er innan lokunarsvæðis en utan rýmingarsvæðis.