Nýjast á Local Suðurnes

Banna drónaflug yfir Grindavík

Vegna vænts eldgoss í nálægð við Grindavík hefur Samgöngustofa gefið út bann við  drónaflug innan svæðis sem markast af eftirfarandi hnitum:

635621N0222218W

635440N0221323W

634641N0222232W

634902N0223533W

Drónaflug á vegum Ríkislögreglustjóra, Almannavarna og Landhelgisgæslunnar er undanþegið. Bannið hefur þegar tekið gildi og gildir til miðnættis 29. nóvember næstkomandi, segir í tilkynningu.