Reynismenn fá reynslubolta að láni frá Grindavík

Reynir Sandgerði hefur fengið framherjann Tomislav Misura á láni frá Grindavík. Tomislav kom til Grindvíkinga fyrir tveimur árum síðan. Hann skoraði sjö mörk fyrir Grindvíkinga í 1. deildinni á síðasta tímabili eftir að hafa skorað fimm mörk árið 2014.
Tomislav er 34 ára gamall reynslubolti en hann skoraði gegn FH í Meistaradeildinni árið 2005 með liði Neftchi Baku frá Aserbaídsjan. Það er fotbolti.net sem greinir frá þessu og þar kemur fram að Tomislav hafi verið mikið á bekknum hjá Grindavík á undirbúningstímabilinu.
Reynir hafnaði í 3. sæti 3. deildar í fyrra og var nálægt því að komast upp.