Nýjast á Local Suðurnes

Eiga möguleika á fríu flugi til New York í tilefni af Valentínusardeginum

Lággjaldaflugfélagið WOW-air ætlar að bjóða farþegum sem heita Valentínus eða Valentína að ferja einn ferðafélaga frítt til New York á Valentínusardaginn. Á þriðja tug fólks sem ber þessi tvö nöfn eru skráð hér á landi.

Í tilefni af Valentínusardeginum ætlar WOW air að bjóða öllum farþegum sem heita Valentínus eða Valentína frítt flug fyrir (ást)vin sinn til New York. Tilboðið gildir fyrir flug sem bókuð eru til 14. febrúar næstkomandi, en ferðatímabilið er 10. –19. febrúar 2019, segir í tilkynningu WOW-air.

Íbúar New York halda Valentínusardaginn jafnan hátíðlegan, enda nóg að gera í borginni fyrir ástfangin pör, hvort sem þau kjósa að fara í rómantíska gönguferð um Central Park, kíkja á stefnumót á toppi Empire State-byggingarinnar, já eða bara skella sér á skeljarnar á Times Square.