Búið að opna fyrir umferð á Reykjanesbraut
Búið er að opna fyrir umferð um Reykjanesbraut á ný, en brautinni var lokað í báðar áttir um klukkan 20 í kvöld vegna umferðarslyss sem varð skammt frá álverinu í Straumsvík.
Tveir bílar lentu í hörðum árekstri, fjórir voru í bílunum og voru þrír þeirra fluttir á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar.