Nýjast á Local Suðurnes

FS áfram í aðra umferð Gettu betur

Lið Fjölbrautaskóla Suðurnesja er komið áfram í spurningakeppni Gettu betur, en fyrsta umferð keppninnar hófst í kvöld. Keppnin var einungis send út á vef Ríkisútvarpsins, ruvnull.is, en ekki á Rás tvö eins og venja er.

Andstæðingar FS í fyrstu umferð var lið Menntaskólans í Kópavogi og var viðureignin afar spennandi en aðeins tvö stig skildu liðin að þegar yfir lauk og endaði keppnin 21-19.

Mynd: skjáskot RÚV.is / frá viðureign FS og MK