Nýjast á Local Suðurnes

Á fleygiferð undir áhrifum fíkniefna

Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft í nógu að snúast undanfarið en allmörg umferðarlagabrot hafa komið á borð lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum, segir í tilkynningu.

Ökumaður sem var stöðvaður í hraðakstri var jafnframt grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar, sem grunaður var um ölvunarakstur ók sviptur ökuréttindum. Þriðji ökumaðurinn framvísaði ökuskírteini sem reyndist vera grunnfalsað.

Fáeinir ökumenn til viðbótar voru teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur. Þá voru á annan tug ökumanna kærðir fyrir að aka of hratt.