Nýjast á Local Suðurnes

Axla ábyrgð og loka Sporthúsinu tímabundið

Ákveðið hefur verið að loka Sporthúsinu tímabundið á ný frá og með morgundeginum, 23. október. Opnað var fyrir hluta starfseminnar í kjölfar reglugerðar heilbrigðisráðherra um að heimilt væri að opna fyrir hópatíma. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu fyrirtækisins.

Tilkynningin í heild sinni:

Kæru viðskiptavinir og starfsmenn

Mikil og almenn óánægja er í samfélaginu yfir því að Sporthúsið skuli hafa nýtt þá heimild sem kveðið er á um í reglugerð heilbrigðisráðherra og opnað fyrir hóptíma, en ekki farið að tilmælum sóttvarnalæknis, þrátt fyrir að í minnisblaði hans til ráðherra hafi verið lagt til að tilteknar íþróttir gætu hafið starf með takmörkunum, svo sem CrossFit og jóga.

Í ljósi þessa tel ég að ekki hafi verið rétt að svo stöddu að opna Sporthúsið, CrossFit, BootCamp, SuperForm og aðra starfsemi hjá okkur sem kennd er í hópum.
Vegna skilaboða sóttvarnalæknis gegnum fjölmiðla og þeirrar miklu sundrungar sem virðist vera í samfélaginu vegna opnunar líkamsræktarstöðva hef ég ákveðið að axla ábyrgð og loka starfsemi okkar aftur, í von um að það sé rétt ákvörðun fyrir almannahag. Lokunin tekur gildi frá og með 23. október.
Ég biðst innilega afsökunar á þeim óþægindum sem þetta hringl hefur valdið og vona að við komumst í sameiningu gegnum þessa bylgju Covid-19 veirunnar sem allra fyrst.

Mig langar að lokum að benda á það að þrátt fyrir gríðarlegan fjölda heimsókna í Sporthúsið (um 1 milljón heimsókna), frá því að Covid-19 hófst, þá hefur eftir minni bestu vitund ekkert smit verið rakið til okkar. Öll umræða um líkamsræktarstöðvar sem gróðrarstíu Covid-19 á því að mínu mati ekki við um okkar starfsemi, enda höfum við og viðskiptavinir okkar lagt gríðarlega hart að okkur við að gæta að ýtrustu sóttvörnum.

Með von um að friður skapist í samfélaginu með þessari ákvörðun og vonandi getum við opnað Sporthúsið að fullu áður en langt um líður.

Kær kveðja,
Þröstur Jón